EG-fasteignamiðlun kynnir:
LÓMASALIR 16 - BJÖRT OG FALLEG 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Á 3.HÆÐ ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Í FJÖLBÝLISHÚSI MEÐ LYFTU Á GÓÐUM STAÐ Í SALARHVERFI Í KÓPAVOGI - FRÁBÆRT ÚTSÝNI.Birt flatarmál eignarinnar er 116,5 fm og þar af er geymslan 6,7 fm.
Komið er inn sérinngang af svölum inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Hol er með parketi.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi og útengi út á stórar(ca. 12 fm) svalir með frábæru útsýni, m.a. til Snæfellsjökuls, Suðurnesja og víðar.
Eldhúsið sem er opið við stofu er með flísum á gólfi og viðarinnréttingu sem nær alveg upp í loft.
Baðhergið sem er allt nýlega endurnýjað er flísalagt í hólf og gólf með fallegum stórum flísum og þar er góður "walk-in" sturtuklefi, upphengt salerni, innrétting með hringlaga handlaug og handklæðaofn.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vask í vinnuborði og skáp.
Hjónaherbergi er með parketi og góðum fataskápum.
Tvö barnaherbergi með parketi og fataskápum.
Í kjallara er góð sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Frábær staðsetning, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, Salarlaugina, og íþrótta og fimmleikahús Gerplu svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-8767
[email protected]